Pakkar
Með því að bjóða eingöngu þráðlausar 5G lausnir, rafræn símkort og sleppa öllum óþarfa eins og talhólfi, vinatónum og símtölum í rándýr þjónustunúmer. Við hagnýtum gervigreindina eins og hægt er, erum með litla yfirbyggingu og ekkert hefðbundið þjónustuver né verslanir.
Rafræn símkort (eSIM) eru einfaldlega innbyggð í símann þinn – ekkert plast, engar flækjur. Við afhendum símkortið í appinu eða á vefnum og sendum það líka í tölvupósti til öryggis. Það er ýmist hægt að setja upp símkortið með því að fylgja leiðbeiningum í appinu eða með því að skanna QR kóða sem þú færð í tölvupósti. Ef þú ert í vandræðum með að setja upp símkortið – þá getur þú spjallað við Kosmos, hann hjálpar þér.
Rafræn símkort styðja ekki rafræn skilríki af öryggisástæðum, enda eru þessi símkortaskilríki á útleið. Við mælum með appinu frá Auðkenni sem þú setur upp í símanum þínum. Það eina sem þú þarft að hafa við hendina er vegabréfið þitt.
Já, Kosmos er með samninga við Nova og Orange um öll fjarskipti og reiki. Fyrir Ísland og Evrópu (EES + Bretland) notum við dreifikerfi og samninga Nova og erum því með sömu gæðadreifingu og viðskiptavinir Nova. Utan Evrópu reiðum við okkur á samning við Orange, eitt af tíu stærstu fjarskiptafyrirtækjum heims, sem tryggir gott samband og gagnreiki nánast hvar sem er.
Kosmos tryggir að þitt verð muni ekki hækka í 2 ár – þrátt fyrir mögulegar verðhækkanir. Komi hinsvegar til þess að Kosmos lækki verðin þá munt þú njóta þeirrar lækkunar líkt og aðrir. Einfalt, gagnsætt og sanngjarnt. Það er Kosmos.



Nokkrar algengar spurningar
Spjallaðu við Kosmos hér að neðan ef þú ert með einhverjar spurningar.

