Skilmálar 1.0 – 30/04/2026
Skilmálar þessir gilda um þjónustu Kosmos og geta tekið breytingum. Allar breytingar verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara á www.kosmos.is. Öll verð á vef og í auglýsingum eru birt með fyrirvara um villur.
Skilmálar á mannamáli.
🧾 Almenn atriði
Skilmálar Kosmos gilda um allar áskriftir, þjónustu og vörur.
Viðskiptavinir samþykkja skilmálana með notkun.
Sá sem borgar fyrir áskriftina er greiðandi; sá sem notar þjónustuna er rétthafi.
Kosmos ber ekki ábyrgð á truflunum í netsambandi eða á efni sem notendur sækja.
Notandi ber ábyrgð á búnaði, lykilorðum og annarri notkun. Ef sími glatast og þar með rafræn simkort (eSIM), ber notandi ábyrgð á að tilkynna það til Kosmos.
💳 Greiðslur og vanskil
Þjónusta Kosmos er fyrirframgreidd og áskriftargjald er skuldfært mánaðarlega á greiðslukort sem viðskiptavinur framvísir við upphaf áskriftar. Eingreiðsla fyrir vöru/þjónustu sem ekki er í áskrift er skuldfærð á greiðslukort sem notað er við kaupin.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á allri notkun, jafnvel þó hann hafi ekki sjálfur notað þjónustuna.
Ef ekki tekst að rukka fyrir áskrift getur komið til lokunar á þjónustu.
📴 Uppsögn
Samningur er ótímabundinn nema annað sé tekið fram. Mánaðaráskrift endurnýjast á 30 daga fresti, ársáskrift endurnýjast á 360 daga fresti.
Hægt er að segja upp áskrift hvenær sem er og gildir áskriftin þá aðeins fram að næstu endurnýjun.
Kosmos getur lokað þjónustu ef notandi misnotar hana.
Notuðum leigubúnaði þarf að skila í góðu ásigkomulagi, annars áskilur Kosmos sér rétt til að rukka fyrir hann.
📱 Farsíma- og netþjónusta
Innifalið gagnamagn er ætlað til nota á Íslandi og innan Evrópu (EES + Bretland), nema annað sé tekið fram.
Óeðlileg netnotkun getur leitt til takmarkana eða lokunar þjónustu.
🔐 Persónuvernd
Kosmos vinnur með persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarstefnu, sem er hluti skilmálanna.
⚖️ Lagasvið og ágreiningur
Skilmálar lúta íslenskum lögum.
Ágreiningur er leystur af Fjarskiptastofu eða Héraðsdómi Reykjavíkur.
Skilmálar geta tekið breytingum með 30 daga fyrirvara.
Ef þú hefur sérstakan áhuga á lögfræði er hægt að lesa alla skilmálana hér að neðan:
1. Almennir skilmálar
1.1 Skilmálar þessir gilda um réttarsamband milli Kosmos ehf., kt. 491025-0930, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík (Hér eftir „Kosmos”) og viðskiptavinar og eftir atvikum rétthafa, vegna kaupa á þjónustu eða vörum. Viðskiptavinir Kosmos skuldbinda sig til þess að hlíta þeim skilmálum sem gilda um notkun þjónustu Kosmos á hverjum tíma.
Eftirfarandi telst einnig hluti af skilmálum Kosmos:
Persónuverndarstefna Kosmos, sem finna má á vefsíðu félagsins www.kosmos.is/personuvernd
Verðskrá Kosmos sem finna má vefsíðu félagsins www.kosmos.is/verdskra
1.2 „Viðskiptavinur“ Kosmos samkvæmt skilmálum þessum er greiðandi þjónustu Kosmos. Sé annar aðili notandi þjónustunnar en viðskiptavinurinn, er sá notandi rétthafi. Fyrirtæki og einstaklingar geta verið viðskiptavinir Kosmos í skilningi skilmála þessara en rétthafi er ávallt einstaklingur.
1.3 Rétthafi einn getur verið greiðandi þjónustu nema annar aðili, þ.e. annar en notandi þjónustunnar sem er jafnframt rétthafinn, samþykki sérstaklega greiðsluskyldu fyrir viðkomandi rétthafa vegna þjónustunnar.
1.4 Þjónusta Kosmos er ætluð til notkunar í farsíma og netbúnað viðskiptavina og rétthafa. Kosmos áskilur sér rétt til þess að loka fyrir fjarskiptaþjónustu ef í ljós kemur að þjónustan er notuð með sviksamlegum hætti.
1.5 Kosmos ber hvorki ábyrgð á beinu né óbeinu tjóni sem viðskiptavinur eða rétthafi kann að verða fyrir vegna sambandsleysis, rofs á fjarskiptum eða annarra truflana sem kunna verða.
1.6 Kosmos hefur ekki eftirlit með eða ber ábyrgð á innihaldi efnis sem sótt er á Internetið eða keypt er af þriðja aðila. Öll notkun, framleiðsla og vinnsla með efni sem fengið er af Internetinu er á ábyrgð viðskiptavinar. Kosmos hefur ekki eftirlit með og ber ekki ábyrgð á innihaldi skilaboða sem viðskiptavinur eða rétthafi móttekur og/eða sendir.
1.7 Viðskiptavinur Kosmos er ábyrgur fyrir leigubúnaði, greiðslum og allri notkun. Ef viðskiptavinur getur af einhverjum ástæðum ekki skilað leigubúnaði eða skilar búnaði sem er ekki í ástandi til útleigu aftur þá er Kosmos heimilt að gjaldfæra á viðkomandi viðskiptavin upphæð sem nemur andvirði búnaðarins miðað við söluverð hans á afhendingartíma.
1.8 Viðskiptavinur og rétthafi skulu gæta þess að lykilorð og/eða aðgangsorð er tengjast þjónustunni komist ekki í hendur annarra aðila, t.a.m. QR-kóði eSIM korts, PIN/PUK SIM korts, aðgangur að smáforriti (appi) Kosmos, og/eða þjónustusíðu Kosmos á netinu. Öll notkun á þjónustunni er á ábyrgð viðskiptavinarins. Ef viðskiptavinur eða rétthafi glatar SIM korti , eSIM korti, eða því er stolið, er mikilvægt að hann tilkynni Kosmos tafarlaust um slíkt. Hægt er að tilkynna um týnt/glatað simkort í gegnum smáforrit Kosmos, með því að hafa samband í gegnum netspjallið á Kosmos.is, eða með því að senda tölvupóst á Kosmos@Kosmos.is.
1.9 Óski viðskiptavinur eftir því að gera breytingar á þjónustunni ber honum að beina beiðni um slíkt til Kosmos í gegnum smáforrit Kosmos, með tölvupósti á Kosmos@Kosmos.is, eða hafa samband í gegnum netspjallið á Kosmos.is. Kosmos áskilur sér rétt til þess að krefja rétthafa staðfestingar á slíkum beiðnum með rafrænum skilríkjum.
1.10 Ef í ljós kemur að notkun felur í sér misnotkun á búnaði og/eða þjónustu Kosmos, áskilur Kosmos sér rétt til að synja viðskiptavini eða rétthafa um þjónustu, ýmist um stundarsakir eða til frambúðar.
1.11 Kosmos áskilur sér rétt til að hafa samband við viðskiptavin og/eða rétthafa, með símtölum, sms skilaboðum, skilaboðum í smáforriti, eða með því að senda tölvupóst á það netfang sem viðskiptavinur hefur tilgreint, í viðskiptalegum tilgangi, í markaðslegum tilgangi, til þess að auka þjónustu, tilkynna um breytingar á þjónustu viðskiptavinarins eða til þess að óska eftir upplýsingum um upplifun viðskiptavinar eða rétthafa af þjónustu Kosmos. Ef breyting á sér stað á þjónustu Kosmos, eru slíkar tilkynningar sendar með tölvupósti á það netfang sem viðskiptavinur eða rétthafi hefur tilgreint.
1.12 Brot á skilmálum þessum kann að valda tafarlausri lokun á þjónustu viðskiptavinar og rétthafa.
2. Greiðsluskilmálar og vanskil
2.1 Um gjald fyrir fjarskiptaþjónustu, sem og aðra þjónustu Kosmos, fer samkvæmt gildandi verðskrá sem Kosmos gefur út og er aðgengileg á vefsíðu Kosmos, www.kosmos.is.
2.2 Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslum til Kosmos vegna notkunar sem á sér stað á fjarskiptaþjónustu eða búnaði, óháð því hvort viðskiptavinur hefur heimilað notkun eða ekki.
2.3 Kosmos gjaldfærir kostnað vegna fyrirframgreiddrar áskriftarþjónustu á greiðslukort sem viðskiptavinur framvísar við upphaf áskriftar. Mánaðaráskrift er gjaldfærð á 30 daga fresti, ársáskrift er gjaldfærð á 360 daga fresti. Kosmos sendir ekki reikninga á pappírsformi.
2.5 Hafi viðskiptavinur athugasemdir við gjaldfærslu á greiðslukort skal hann koma þeim athugasemdum á framfæri við Kosmos án tafar og eigi síðar en 10 dögum frá gjaldfærslu greiðslukorts. Berist athugasemd eftir þann tíma, en atvik réttlæta með ótvíræðum hætti að tafir hafi orðið á athugasemdum frá viðskiptavini, skal Kosmos taka slíkar athugasemdir til skoðunar.
2.6 Upphaf áskriftar miðast við þann almanaksdag mánaðar sem þjónusta hófst. Gjaldfærslur eru sjálfvirkar, fyrir 30 eða 360 daga í senn, þar til viðskiptavinur segir upp áskriftinni. Ef ekki er næg innstæða fyrir gjaldfærslu, skilgreint kort er útrunnið eða annað, sem viðskiptavinur er valdur af, kemur í veg fyrir að Kosmos geti gjaldfært fyrirframgreidda þjónustu virkjast lokunarferli þar sem þjónusta takmarkast í skrefum, þar til áskrift er gerð óvirk, sbr. kafli 4.2. Viðskiptavinur getur keypt áskrift aftur á þeim kjörum sem bjóðast hverju sinni.
3. Uppsögn
3.1 Eftir að gengið hefur verið frá kaupum viðskiptavinar á þjónustu Kosmos, og hann hefur staðfest að hafa móttekið og kynnt sér skilmála Kosmos, er kominn á ótímabundinn samningur milli viðskiptavinar og Kosmos nema sérstaklega hafi verið samið á annan hátt.
3.2 Báðir aðilar geta sagt upp þjónustu, svo fremi að ekki séu í gildi sérákvæði um uppsögn í samningi aðila. Hægt er að segja upp þjónustu með því að hafa samband í gegnum smáforrit Kosmos, netspjallið á Kosmos.is eða með því að senda tölvupóst á kosmos@kosmos.is. Kosmos áskilur sér rétt til að krefja rétthafa um staðfestingu á uppsögn á þjónustu eftir atvikum með rafrænum skilríkjum.
Ef um er að ræða netaðgang í gegnum netbeini (e. Router) sem leigður er af Kosmos, hefur viðskiptavinur 30 daga, frá lokum þjónustunnar, til að skila honum á næsta afhendingarstað Dropp samkvæmt leiðbeiningum. Dragist skil, áskilur Kosmos sér rétt til að gjaldfæra að fullu söluverð búnaðar sem ekki hefur verið skilað.
3.3 Kosmos er heimilt að takmarka, synja og/eða segja upp þjónustu viðskiptavinar eða rétthafa, tímabundið eða varanlega, og eftir atvikum rifta samningi við viðkomandi viðskiptavin ef hann eða rétthafi sýna af sér ógnandi, dónalega og/eða aðra óásættanlega framkomu í garð starfsmanns Kosmos.
3.4 Viðskiptavinur getur sagt upp fyrirframgreiddri áskrift hvenær sem er, nema þar sem önnur ákvæði í samningum aðila gilda.
3.5 Mánaðaráskrift af þjónustu er ekki endurgreidd við uppsögn þrátt fyrir að hafa ekki verið að fullu nýtt, nema um annað hafi verið samið. Ónýttir heilir mánuðir af ársáskrift eru endurgreiddir við uppsögn.
4. Skilmálar fjarskiptaþjónustu
4.1 Fjarskiptaþjónustan sem Kosmos veitir viðskiptavini er í öllum tilfellum fyrirframgreidd. Gildistími fyrirframgreiddra áskrifta er 30 dagar eða 360 dagar. Ef innifalið gagnamagn samkvæmt áskriftarpakka hefur ekki verið fullnýtt innan gildistímans, falla eftirstöðvarnar niður við endurnýjun og flytjast ekki á milli tímabila.
4.2 Kjósi viðskiptavinur ekki að endurnýja fyrirframgreidda áskrift, eða ekki tekst að gjaldfæra fyrir áskrift af einhverjum orsökum, sendir Kosmos viðskiptavini tilkynningu þess efnis og áskilur sér rétt til þess að loka fyrir úthringingar og netnotkun. Að 90 dögum liðnum án endurnýjunar á farsímaáskrift áskilur Kosmos sér rétt til að loka fyrir innhringingar og gera númer viðskiptavinar óvirkt.
4.3 Hafi númer verið gert óvirkt skv. gr. 4.2. getur rétthafi númers óskað eftir endurvirkjun þess með því að hafa samband í gegnum smáforrit Kosmos, í gegnum netspjallið á kosmos.is eða með því að senda tölvupóst á kosmos@kosmos.is. Kosmos áskilur sér rétt til að krefja rétthafa um að auðkenna sig eftir atvikum með rafrænum skilríkjum.
5. Farsímaþjónusta
5.1 Viðskiptavinur sem flytur símanúmerið sitt frá öðru fjarskiptafyrirtæki til Kosmos, eða frá Kosmos til annars fjarskiptafyrirtækis, verður að vera rétthafi þess símanúmers sem flutt er.
5.2 Númeraflutningur fer að öðru leyti eftir reglum Fjarskiptastofu, um númera- og þjónustuflutning í almennum fjarskiptanetum nr. 1112/2022.
6. Netþjónusta
6.1 Uppsetning á hugbúnaði er ávallt á ábyrgð viðskiptavinar og ber Kosmos því ekki ábyrgð á tjóni sem notkun eða uppsetning kann að valda, hvort sem hún á sér stað í gegnum síma, tölvu eða á annan hátt. Viðskiptavini og rétthafa er óheimilt að hýsa eða dreifa efni sem brýtur í bága við lög, reglur og/eða almennt velsæmi.
6.2 Til að tryggja öryggi í gagnaflutningum áskilur Kosmos sér rétt til að loka fyrir þjónustu um stundarsakir eða til frambúðar, fari gagnamagn yfir skilgreind öryggismörk þjónustuleiðar hverju sinni.
6.3 Netnotkun miðast við bæði innlent og erlent gagnamagn, sótt og sent. Gagnamagn innifalið í fyrirframgreiddri farsímaáskrift er hægt að nota á Íslandi og í Evrópu (EES)/Bretlandi, samkvæmt vörulýsingu og verðskrá á www.kosmos.is, nema annað sé tekið fram í skilmálum þessum.
6.4 Fyrirframgreidd netnotkun í þráðlausum netbeini er alltaf ótakmörkuð.
6.5 Fyrirframgreidd erlend netnotkun utan EES og Bretlands takmarkast við uppgefið innifalið gagnamagn dagpakka hverju sinni skv. verðskrá.
6.6 Áður en innifalið gagnamagn fyrirframgreiddrar farsímaþjónustu klárast fær viðskiptavinur senda tilkynningu þess efnis og er boðið að bæta við gagnamagni, eða uppfæra í þjónustuleið sem inniheldur meira gagnamagn, skv. verðskrá.
6.7 Ótakmarkað innifalið gagnamagn miðast við almenna netnotkun. Kosmos áskilur sér rétt til að takmarka eða loka þjónustu ef notkun viðskiptavinar felur í sér óeðlilegt álag, sem hefur neikvæð áhrif á upplifun annarra viðskiptavina af þjónustunni.
6.8 Ef viðskiptavinur með netbeini í leigu hjá Kosmos segir upp áskrift hefur hann 30 daga frá lokum þjónustu til að skila leigubúnaðinum á næsta afhendingarstað Dropp. Ef leigubúnaði er ekki skilað innan ofangreinds frests er Kosmos heimilt að gjaldfæra viðkomandi viðskiptavin um andvirði búnaðarins miðað við söluverð hans á afhendingartíma.
7. Búnaður
7.1 Kosmos ber ábyrgð á uppsetningu og rekstri eigin búnaðar sem nauðsynlegur er til þess að veita þjónustuna. Uppsetning og rekstur á búnaði í eigu viðskiptavinar er ávallt á ábyrgð viðskiptavinar. Kosmos ber ekki ábyrgð á afleiddu tjóni viðskiptavinar eða þriðja aðila sem notkun eða uppsetning á búnaði viðskiptavinar kann að valda.
7.2 Búnaður sem Kosmos afhendir viðskiptavini er einungis ætlaður til eigin notkunar viðskiptavinar eða rétthafa. Viðskiptavini er óheimilt að leigja, selja eða láta af hendi búnaðinn til þriðja aðila. Þá er viðskiptavini einnig óheimilt að eiga við búnaðinn með nokkrum hætti, s.s. að taka hann í sundur og/eða gera á honum breytingar af einhverju tagi. Viðskiptavinur ber ábyrgð á meðferð þess búnaðar sem hann fær frá Kosmos og gildir sú ábyrgð á meðan búnaðurinn er í hans vörslu.
7.3 Kosmos áskilur sér rétt til að krefjast afhendingar á búnaði sínum til að láta fara fram skoðun á ástandi hans en skal þá afhenda viðskiptavini samskonar búnað á meðan skoðun stendur. Vanræki viðskiptavinur skyldu sína til að afhenda búnað til skoðunar hjá Kosmos, er Kosmos heimilt að gjaldfæra viðkomandi viðskiptavin um andvirði búnaðarins miðað við söluverð hans á afhendingartíma.
8. Áskriftir og pakkar
8.1 Um áskriftarleiðir og verðlagningu áskrifta er fjallað í gildandi verðskrá Kosmos hverju sinni. Nánar um áskriftaleiðir inn á www.kosmos.is/verdskra
8.2 Ef viðskiptavinur Kosmos kýs að leigja þráðlausan 5G netbeini (e.router), greiðir hann mánaðarlegt afnotagjald. Allur búnaður sem viðskiptavinur fær til afnota er eign Kosmos og ber viðskiptavinur ábyrgð á hvers konar tjóni á leigðum búnaði, þ. á m. vegna hvers konar breytinga á búnaðinum.
8.2.1 Leigugjöld vegna netbúnaðar eru fyrirframgreidd mánaðarlega með skuldfærslu á greiðslukort. Mánaðargjald er innheimt frá og með þeim degi sem búnaðurinn er afgreiddur frá Kosmos og svo á 30 daga fresti á meðan búnaðurinn er í umsjá viðskiptavinar.
9. Persónuvernd
9.1 Í tengslum við veitingu þjónustu Kosmos og í samskiptum við viðskiptavini og rétthafa vinnur KOSMOS með persónuupplýsingar einstaklinga eins og nánar er lýst í Persónuverndarstefnu Kosmos. Persónuverndarstefna Kosmos telst hluti skilmála þessara; www.kosmos.is/personuvernd
10. Ágreiningur og lögsaga
10.1 Um samning aðila og skilmála þessa gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur um túlkun eða skýringu þeirra geta aðilar vísað slíkum ágreiningi til úrskurðar Fjarskiptastofu. Mál vegna samnings aðila eða skilmála þessara skulu rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
10.2 Skilmálar þessir gilda nema annað sé tekið fram í gildandi verðskrá Kosmos eða sérskilmálum fyrir hverja þjónustu Kosmos.
10.3 Skilmálar þessir gilda um þjónustu Kosmos og geta tekið breytingum. Allar breytingar verða kynntar með minnst 30 daga fyrirvara á www.kosmos.is. Öll verð á vef og í auglýsingum eru birt með fyrirvara um villur.
11. Gildistími
11.1 Skilmálar þessir taka í gildi frá og með 6. maí 2026 og halda gildi sínu þar til nýir taka gildi.
Vefkökur
Hvað eru vefkökur?
Vefkökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem eru geymdar í minninu á tölvunni þinni/símanum í gegnum vafrann þinn. Þær eru notaðar til þess að gera notendaupplifun þína sem besta og einfalda okkur að hafa yfirlit yfir þínar stillingar, til að tryggja öryggi og til að greina umferð um síðuna.
Hvaða vefkökur notar Kosmos?
Nauðsynlegar kökur
Nauðsynlegar kökur tryggja sem besta virkni og þjónustu á Kosmos.is, í smáforriti og samskiptum við snjallmennið Kosmos. Án þessara vefkaka getum við ekki tryggt gæði þeirrar þjónustu sem við viljum geta veitt. Þessar kökur safna ekki upplýsingum sem geta verið notaðar til þess að auðkenna gesti Kosmos.is né fylgjast þær með eða muna hvar þeir hafa verið á netinu.
Nafn | Veita | Upplýsingar | Gildistími |
__cfduid | Notað af efnisveitu til að greina trausta vefumferð. | Lota (e. Session) | |
__cfduid | Notað af efnisveitu til að | Lota (e. Session) | |
algoliasearch-client-js | Leitarþjónustan Algolia notar til að bæta hraða og upplifun og í leitarglugga á Kosmos.is. | - | |
APS.NET_SessionId | Notað til að viðhalda auðkenni og stillingum gests í tilfallandi lotu. | Lota (e. Session) | |
ASP.NET_SessionId | Notað til að viðhalda auðkenni og stillingum notanda í tilfallandi lotu. | Lota (e. Session) | |
__RequestVerificationToken | Fingrafar á vafra sem notað er til að koma í veg fyrir fölsun fyrirspurna milli vefja við viðkvæmar aðgerðir s.s. innskráningu. | Lota (e. Session) |
Virknikökur
Virknikökur leyfa okkur að veita gestum betri upplifun við notkun samskiptaleiða okkar. Þessar kökur safna ekki upplýsingum sem geta verið notaðar til þess að auðkenna gesti kosmos.is.
Nafn | Veita | Upplýsingar | Gildistími |
checkoutId | Notað af vefverslun Kosmos til að viðhalda körfu notanda í gegnum síðuflakk. | 2 vikur | |
help-header-shortcurts_v# | Notað af Kosmos til að stýra birtingu á tilkynningum eftir óskum gests | - | |
cookies | Notað af Kosmos til að stýra birtingu á vefborða vegna vefkaka. | - |
Vefsíðugreining
Við vefsíðugreiningu er notast við tölfræðikökur sem greina hegðun gesta á kosmos.is með því að safna nafnlausum upplýsingum til greiningar.
Nafn | Veita | Upplýsingar | Gildistími |
dcgtm_UA-# | Notað af Google Tag manager til að stýra notkun á skrám vegna Google Analytics. | 2 vikur | |
_ga | Skráir einkvæmt auðkenni sem er notað til að búa til tölfræðileg gögn um heimsóknir gests á vefinn. | 2 ár | |
_gid | Skráir einkvæmt auðkenni sem er notað til að búa til tölfræðileg gögn um heimsóknir gests á vefinn. | Lota (e. Session) | |
mmstat | Notuð til að ákvarða hvort gestur hefur áður heimsótt síðuna. | 999 dagar | |
siteimproveses | Notuð til að skrá í hvaða röð gestur heimsækir síður. | Lota (e. Session) |
Markaðssetning
Kökur vegna markaðssetningar skoða hegðun gesta á vefnum og tilfærslur milli vefsvæða. Tilgangur þeirra er að birta aðeins auglýsingar sem eru viðeigandi og líklegar til að vekja áhuga einstakra notanda.
Nafn | Veita | Upplýsingar | Gildistími |
C | Notuð til að kanna hvort vafri gests styðji kökur. | 29 dagar | |
cid | Upplýsingar frá kökur eru nýttar til að besta auglýsingabirtingu byggðar á flettingum gests og áhuga auglýsenda til að birta honum auglýsingar. | 2 mánuðir | |
fr | Notað af facebook til að birta auglýsendum möguleg auglýsingatækifæri til sölu. | 3 mánuðir | |
uid | Skráir einkvæmt auðkenni til að greina flakk gests milli vefsvæða sem nota sama auglýsingakerfi. Tilgangurinn er að besta birtingu auglýsinga byggða á flettingum gests og áhuga auglýsenda á að birta honum auglýsingar. | 2 mánuðir |
Er hægt að sleppa við vefkökur?
Þú getur slökkt á vefkökum í vafranum þínum. Hér má finna upplýsingar um stillingar á vefkökum í öllum algengustu vöfrum. Þessi síða inniheldur einnig almennar upplýsingar um vefkökur og áhrif þeirra á okkur og vefnotkun okkar. Tengill er á vefsvæði þriðja aðila. Kosmos ber ekki ábyrgð á þeim upplýsingum sem þar koma fram.
Kosmos notar vefkökur frá þriðja aðila sem háðar eru samþykki notanda. Þessar vefkökur eru ekki nauðsynlegar til að nota vefinn en veita Kosmos mikilvægar upplýsingar fyrir starfsemi sína og þjónustu á vefnum. Notendur geta nálgast upplýsingar um þessar kökur og hvort og hvernig hægt að er að afturkalla samþykki við notkun þeirra á vefsíðum þessara þriðju aðila. Kosmos ber ekki ábyrgð á þeim upplýsingum sem þar koma fram.
Urðu okkur á mistök?
Við viljum að allir í kosmósinu séu lausnamiðaðir þannig að viðskiptavinir hafi aðgang að áreiðanlegri fjarskiptaþjónustu. Þegar mistök eiga sér stað er mikilvægast að leysa málin fljótt og vel. Verði okkur á mistök gerum við okkar besta til þess að leiðrétta slík mistök eins fljótt og mögulegt er í sátt við viðskiptavini. Sendu okkur línu á Kosmos@Kosmos.is eða hafðu samband við okkur á netspjallinu á kosmos.is og við leysum vandamálið í sameiningu.
Ábendingar eða kvartanir
Viltu koma á framfæri kvörtun eða ábendingu um hvað við hjá Kosmos getum gert betur? Þá hvetjum við þig til að heyra í okkur eða senda okkur línu á kosmos@kosmos.is